mánudagur, 4. febrúar 2008

Vondulagakeppni starfsmanna Fréttablaðsins.

Heilir og sælir félagar.

Árshátíðin er á laugardag. Í tilefni þess efnum við til vondulagakeppni starfsmanna Fréttablaðsins. (AÐ GEFNU TILEFNI: ÞETTA ER EKKI LAGASMÍÐAKEPPNI, HELDUR Á MILLI LAGA SEM ERU ÞEGAR TIL)

Málið er einfalt:
Starfsmenn Fréttablaðsins taka þátt í vondulagakeppni. Hver starfsmaður má senda eitt lag inn í keppnina. Lögin eru send á netfangið vontlag@frettabladid.is. Lögin verða að koma á þægilegu formatti, t.d. sem mp3 fæll eða sem linkur á jútjúb (eða því formatti sem keppendur telja að henti best).

Lögin eru sett hér inn á heimasíðuna leið og þau berast (eða svona nokkurn veginn) þannig að aðrir keppendur geti fylgst með því hvaða lög eru komin inn.

Einu reglurnar eru þessar: Eins og nafn keppninar gefur til kynna verður lagið að vera vont, en það verður að hafa náð einhverjum vinsældum. Öll lög Whitney Houston koma til dæmis til greina en Jón Sigurður má ekki setja inn grískt lag úr safni sínu sem enginn þekkir. Ennfremur mega flytjendur eða höfundar ekki koma úr herbúðum Fréttablaðsins. Þannig geta lög Dr. Gunna og Los Heartbreakers ekki talist gjaldgeng. Kristján og Arnór, í samvinnu við Dr. Gunna, áskilja sér rétt til að hafna lögum.

Síðasti skiladagur lags er fimmtudagurinn 7. febrúar.

Dr. Gunni ætlar að dæma keppnina en úrslitin verða kynnt 8. febrúar, daginn fyrir árshátíð. Þá leikur hann þrjú efstu lögin og segir sögu þeirra.

Að venju eru glæsilegir vinningar í boði. Sem dæmi: Miði á árshátíðina (gildir ekki fyrir maka), árs áskrift að Fréttablaðiunu (gildir líka fyrir maka), síðasta tölublað af hinum ófáanlegu tímaritum f2, birta, sirkus, hér og nú, svo fátt eitt sé nefnt.

Engin ummæli: