Innlegg frá Trausta.
"Þetta lag var gefið út rétt áður en Mr. Mister fór í tónleikaferð til USA þar sem bandið hitaði upp fyrir Tinu Turner. Slagarinn fór á toppinn í Bandaríkjunum í desember 1985. Inspírasjónin að textanum var sótt í bókina “Broken Wings” eftir ekki ófrægari höfund en Kahlil Gibran. Sjónvarpsstöðin VH1 valdi lagið í 19. sæti á lista yfir “The Most Awsomely Bad Breakup Songs.”
Takið eftir upphafinu í chorusnum “Take these broken wings and learn to fly.” Þessa fleyga setning var fyrst notuð í laginu “Blackbird” eftir Bítlana.
Í myndbandinu ekur Richard Page (sem fyrir þá sem ekki vita er barkinn í grúppunni) um eyðimörkina í gömlum Ford Thunderbird (táknrænt). Takið eftir því þegar hann situr í kirkjunni og nær augnkontakti við örninn sem sest hjá honum."
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli