mánudagur, 4. febrúar 2008

Climie Fisher - Loves changes (everything)

Innleggið kemur frá Rut Hermannsdóttur.

Ég skipti á vínil með Climie Fisher og kærasta þegar ég var 11 ára, þ.e.a.s. vinkonan fékk kærastann. Svo vildi ég fá kærastann aftur, en hún vildi ekki skil'onum svo ég grýtt'íana helvítis plötunni sem brotnaðí spað. Þá var kærastanum nóg boðið. Svo sátum við vinkonurnar, Climie- og kærastalausar. En það verður að fylgja sögunni að við erum ágætis kunningjakonur í dag - svo framarlega sem enginn minnist á Climie.

Engin ummæli: