miðvikudagur, 6. febrúar 2008

Gígjukvikindið leggur til Streisand

Í æsku var mér kennt að hvíta albúmið væri alls ekki með Bítlunum. Heldur með Barböru Streisand og Barry Gibb þar sem þessi tvö æcon sameinuðust í eina sæng og ruddu út úr sér þvílíka snilldarromsu að annað eins hefur ekki heyrst. Sígildir smellir streymdu hreinlega fram úr fingurgómum þessara mögnuðu tónlistarmanna og seiðurinn sem magnaður var í hljóðveri Gibb-bræðranna lét engan ósnortinn. Dömur mínar og herrar, ég færi ykkur Woman in Love.

Engin ummæli: